Dr. Bæk tók formlega til starfa á þessu vori í Norðlingaskóla að morgni 20. apríl. Hann skoðaði og vottaði ástand um 40 hjóla kennara og nemenda. Allir fengu límmiða eftir skoðun og ástandsvottorð. Það var pumpað í dekkin og keðjan smurð; skoðaðir gírar og yfirfarnar bremsur. Auk þess var bent á það sem var í góðu lagi og annað sem betur má fara.

Nemendur skólans studdu Dr. Bæk af miklum dugnaði og áhuga eins og sjá má af myndum á heimasíðu Norðlingaskóla. Á næstu vikum mun Dr. Bæk heimasækja fleiri skóla og fyrirtæki; t.d. FossvogsskólaMannvit, VSÓ og VÍS.

Áhugasamir um liðveislu Dr. Bæk sendi línu á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.· eða hringi í s. 864 2776 og bóki stað og stund.

 

|