Hjólafærni á Íslandi og Hugarflug hafa nú lokið við 2. útgáfu af korti með aðgengilegum upplýsingum um allar almenningssamgöngur á Íslandi. Kortið er gefið út á ensku og meðal annars hugsað fyrir þá sem kjósa að ferðast hjólandi um Ísland.

Kortið er unnið í náinni samvinnu við Hugarflug og höfund Leiðalykilsins, Inga Gunnar Jóhannsson. Leiðalykill teiknaði mynd fyrir útgáfuna af öllum almenningssamgöngum í landinu á eitt kort. Kortið er svokallað beinlínukort (“túbukort") og sýnir allar ferðaleiðir almenningssamgangna sem í boði eru um landið. Þar má finna rútur, ferjur og flug og síðan tengingar inn á heimasíður þeirra sem þjónustuna bjóða, til þess að átta sig á áætlununum sem í boði eru.

Dreift frítt.

Kortið er prentað í 30.000 eintökum og er dreift frítt um landið og fer á vefsíður hjólreiðasamtaka um allan heim. 

Verkefnið er styrkt af Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu og Vegagerðinni.

Kortið af almenningssamgöngunum í PDF-útgáfu má nálgast hér.

Kortið af almenningssamgöngum prýðir aðra opnuna á Cycling Iceland 2014 kortinu. Heildarkortið má nálgast hér.

|