- Frétt og mynd af vef Landsbankans

Landsbankinn veitir 5 milljónir í umhverfisstyrki

Landsbankinn veitti í byrjun janúar 5 milljónum króna í umhverfisstyrki  úr  Samfélagssjóði Landsbankans. Veittir voru 17 styrkir, þrír að upphæð 500 þúsund krónur hver og fjórtán að fjárhæð 250 þúsund krónur. Ríflega 130 umsóknir bárust.

 

Umhverfisstyrkjunum er ætlað að styðja við verkefni á sviði umhverfismála og náttúruverndar. Styrkir til umhverfismála byggja á stefnu bankans um samfélagslega ábyrgð hans og skyldur.

Dómnefnd um úthlutun umhverfisstyrkja að þessu sinni var skipuð þeim Dr. Brynhildi Davíðsdóttur, dósent í Umhverfis- og auðlindafræðum við HÍ, Dr. Þorvarði Árnasyni, umhverfis- og náttúrufræðingi og forstöðumanni Rannsóknarseturs HÍ á Hornafirði, Finni Sveinssyni sérfræðingi í samfélagslegri ábyrgð hjá Landsbankanum og Dr. Guðrúnu Pétursdóttur, forstöðumanni stofnunar Sæmundar Fróða um sjálfbæra þróun við HÍ, en hún var jafnframt formaður dómnefndar.

Dr. Guðrún Pétursdóttir segir um úthlutunina: „Það er ánægjulegt að Landsbankinn skuli láta sig umhverfismál varða enda tengjast þau daglegri starfsemi allra fyrirtækja. Það er von mín að umhverfisstyrkirnir hvetji til uppbyggingar sjálfbærs samfélags á Íslandi."

Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans segir: „Það er stefna Landsbankans að vinna í sátt við umhverfið og umhverfisstyrkirnir eru leið bankans til að verðlauna góðar hugmyndir og leggja þeim lið sem vilja gera vel í umhverfismálum og náttúruvernd. Innan bankans höfum við hrint úr vör verkefnum í þessa veru, m.a. höfum við hvatt starfsmenn að skrifa undir samgöngusamning og ferðast á vistvænan máta til og frá vinnu. Það hefur þegar skilað góðum árangri. Við höfum sömuleiðis markvisst dregið úr pappírsnotkun og frá árinu 2010 höfum við kolefnisjafnað útblástur af ferðum starfsmanna á bílum í eigu bankans. Fleiri verkefni af svipuðum toga eru í undirbúningi."

Samfélagssjóður Landsbankans veitir ferns konar styrkir á hverju ári: námsstyrki, samfélagsstyrki, nýsköpunarstyrki og umhverfisstyrki.

Landsbankinn óskar styrkþegum til hamingju og velfarnaðar með verkefni sín í framtíðinni.

Eftirtaldir hlutu umhverfisstyrki úr Samfélagssjóði bankans að þessu sinni:

500 þúsund króna styrkir:

Landvernd - Umhverfis- og landgræðslusamtök Íslands 
Til að gera fræðsluefni um jarðhitasvæði á Íslandi, með það að markmiði að efla þekkingu, bæta umgengni og stuðla að sjálfbærri ferðamennsku á jarðhitasvæðum.

Sigrún Ólafsdóttir, Jón Gunnar Bernburg og Sara Sigurbjörns-Öldudóttir  
Til að gera alþjóðlega rannsókn á viðhorfi til umhverfismála og sjálfbærni, sem styrkt getur forsendur fræðslu og menntunar til sjálfbærrar þróunar á Íslandi.

Sólheimar - Sesseljuhús Umhverfissetur
Til að efla fræðslustarf Orkugarðs á Sólheimum og standa að uppbyggingu Orkugarðs utandyra. Orkugarður er fræðslu og skemmtigarður um endurnýjanlega orkugjafa á Sólheimum

250 þúsund króna styrkir:

Arkitektafélag Íslands
Til að gefa út fræðslurit Arkitektafélags Íslands um vistvæn málefni. Greint verður frá vistvænum sjónarmiðum í byggingarlist og skipulagi með það að markmiði að efla vitund um umhverfisáhrif bygginga.

Arnfirðingafélagið í Reykjavík 
Til að standa að skógrækt og umhverfisátaki í Bíldudal sem unnið er af heimamönnum í sjálfboðastarfi.

Ferðamálafélagið Súlan
Til að merkja gönguleiðir á Langanesi en svæðið er á náttúruminjaskrá.

Fuglavernd 
Til að ljúka gerð fræðsluefnis fyrir leikskólabörn um náttúruvernd þar sem fuglar Íslands eru í forgrunni.

Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs 
Til að starfrækja samstarfsverkefni á grunn- og framhaldsskólastigi um útiskóla við trjárækt og uppgræðslu árið 2012.

Hjólafærni á Íslandi 
Til að standa fyrir hjóladögum í tíu skólum með það að markmiði að efla þekkingu barna á þýðingu hjólreiða fyrir samfélagið og hvetja til aukinna hjólreiða.

Hrafnkell Karlsson 
Til að endurgera þjóðleið fyrir almenning frá Hrauni til Þorlákshafnar með endurhleðslu gamalla grjótvarða.

Jóhannes Sturlaugsson 
Til að útbúa fræðslu- og kynningarefni um lífshlaup sjóbirtings (einkennisfisks straumvatna). Fræðsluefnið er einkum ætlað ferðamönnum sem heimsækja Kirkjubæjarklaustur.

Landgræðslufélag Héraðsbúa
Til að standa að landgræðsluverkefni þar sem ónýttar heyrúllur eru nýttar til uppgræðslu. Um er að ræða  sjálfbært verkefni, því heyrúllur verða jafnan að úrgangi.

Náttúran.is 
Til að þróa snjallsímaforrit með endurvinnslukorti fyrir Ísland sem ætlað er auðvelda aðgengi að endurvinnslustöðvum og fræða almenning um umhverfisvernd og sjálfbærni.

Oddur Vilhelmsson 
Til að fjármagna rannsókn á örverum í jarðvegi en þær eru afgerandi fyrir árangur í landgræðslu.

Sigurður Eyberg 
Til að fjármagna gerð heimildamyndar um „Vistspor Íslands." Myndin fjallar um þau áhrif sem lífsstíll Íslendinga hefur á umhverfið og tilraun höfundar að lifa sjálfbæru lífi.

Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd 
Til að standa straum af efniskostnaði við gróðursetningu og fræsáningu í Hekluskógaverkefninu sem hefur verið starfrækt í 25 ár.

Ungmennafélagið Einingin
Til að bæta aðgengi og stuðla að umhverfisvernd við náttúruperlurnar, Aldey og Aldeyjarfoss sem laða stöðugt að fleiri ferðamenn.

http://www.landsbankinn.is/frettir/2012/01/09/Landsbankinn-veitir-5-milljonir-i-umhverfisstyrki/?p=3

|